Ég ætla bara að byrja þetta blogg á að vara þig við að það er ógeðslega biturt.
Ég sit hérna uppí rúmi með gamla kók í gleri nýbúinn að þvo öll fötin sem ég var í, úti í vaski, hlusta á Sepultura Beneath the Remains og skrifa blogg til að fá einhvern til að vorkenna mér, já og klukkan er 2 um nótt á föstudagskvöldi og mér leiðist!
En allavega byrjaði þetta allt saman klukkan 21:00 þegar Jose Rodrigo Monzon sagði mér að koma á Vicente Posadas 1856, þar ætluðum við að hittast strákarnir heima hjá einum af félögunum og fara svo á Zeta ( skemmtistaður ). Þegar klukkan var 24 fór ég úr stuttbuxunum og sóðalega skólabolnum mínum, fór í sturtu og klæddi mig í aðeins skárri föt. Klukkan 24:30 var ég svo kominn út að leita að Remis ( argentínskir ódýrir leigubílar ). Fann einn eftir stutta bið og sagði honum hvert ég vildi fara, fimm mínútum síðar stoppaði hann svo og sagði mér að ég þyrfti að labba héðan því að húsið er í moldargötu og það er búið að vera rigning alla vikuna svo að í moldargötunum er sirka tuttugu sentimentra drulla dem þú þarft að vaða í gengum.
Ég fór nú bara út og sagði að ég gæti alveg labbað eina og hálfa blocks ( 150 metrar ) það rennur nú íslenskt víkingablóð í æðum mér, ég get alveg labbað í smá drullu, verð ekkert skítugur.
Ég borgaði leigubílstjóranum 200 kall og tók nokkur skref, datt aftur fyrir mig í drulluna og varð drullugur frá toppi til táar, fór úr bolnum til að nota sem handkælði til að þurka drulluna úr andlitinu á mér, gekk svo um í korter í leit að helvítis húsinu sem að ég gjörsamlega gat ekki munað hvernig leit út. Ég spurði 3 manneskjur sem ég rakst á og eina lögu en einginn hafði hugmynd um hvar þetta blessaða hús var.
Eftir að vera orðinn drullugur uppfyrir haus og inneignarlaus sem kom í veg fyrir að ég gæti haft samband við neinn gafst ég upp og tók annan leigubíl heim, sagði honum alla söguna og hlustaði á hann skelli hlægja af mér, fór svo inn um hliðið heima, út á pall afklæddist og skrúbbaði öll fötin mín í vaskinum úti og henti þeim upp á snúru.
Og þá erum við komin að partinum þar sem ég ligg uppi í rúmi og það eina góða sem hefur gerst í kvöld er að ég var að finna alfajor undir koddanum mínum.
Vona bara að dagurinn á morgunn verði skárri, hann verður allavega varla mikið verri!
Annars ef að maður horfir á þetta með öðru sjónarhorni þá var þetta bara ævintýri og smá tilbreyting á venjulegu Argentínsku föstudagskvöldi, er svoa að spá í að fara að verða svona hamingju frík og finna jákvæðu hliðarnar á öllu eins og Pollýanna… æ veit það samt ekki alveg.

annars bara stay tuned, ég fer að skrifa eitthvað um Buenos Aires ferðina mína á nærstu dögum! sjáumst
un abrazo
un feliz islandes en Formosa!
Heyymér fannst bara að það væri kominn tími á einhverskonar update á þetta blogg. Veit ekki alveg hvað ég á að skrifa hérna, maður er búinn að vera hérna svo lengi að maður er ekkert að velta hlutunum fyrir sér eða láta sér bregða eins og til dæmis þegar það koma heimilislausir hundar og sofna á gólfinu í skólastofunni hjá þér eða það er reynt að selja þér kókaín af heimilislausum gæja með rastas sofandi undir tré.

Annars er ég byrjaður í skólanum aftur, ég ákvað að skipta yfir í nýjan skóla þetta árið og fer núna í Colegio Polivalente de artes ( held að hann heiti eitthvð meira en er bara ekki klár á því ). Þar er semsagt lögð meiri áherslu á list, menningu og eitthvað þannig. Ég vakna klukkan 6 á morgnanna, þar sem ég þarf að labba í hálftíma í skólann. Skólinn byrjar svo klukkan 7 á morgnanna og er til 11:10 og á þessum tíma er mest verið að kenna eitthvað bóklegt menningar stöff ( ekkert sérstaklega áhugavert ). Svo förum við bekkjarfélagarnir vanalega og chillum bakvið skólasjoppuna, söfnum klinki í bauk og kaupum kók í gleri. Svo tekur við hálftíma göngutúr aftur heim og hádegismatur sem endar oft með sofandi Íslending á matarborðinu.
Klukkan 3 mætirðu svo aftur í skólan í þrjá klukkutíma á þriðjudögum og fimmtudögum í Forlklore dansa, jább ég er að fara að koma heim dansandi eins og gaucho! Get þó ekkert komið með neinar vandræðalegar dans sögur enþá þar sem ég er bara búinn að mæta í einn tíma þar sem við horfðum á aðra krakka dansa.
http://www.youtube.com/watch?v=sTJCcgGlR_A&feature=share
Svo á mánudögum og miðvikudögum mætirðu í klukkutíma í íþróttatíma sem að ég hef heyrt að sé nærstum því alltaf fótbollti.
Annars er þetta bara hinn fínast skóli, mjög fínir krakkar og allt bara helvíti fínt

skate event frá þar seinustu helgi á plaza de san martin ( nánast eini staður Formosa þar sem þú getur stundað hjólabretti )
Já svo átti ég líka afmæli um daginn kannski maður skrifi örfá orð um það. Kvöldið fyrir afmælið mitt var deginum fagnað reyndar bara með fjölskyldunnimeð kökuáti og afmælissöngnum.
Hér er alltaf borin fram kaka fyrir afmælisbarnið, afmælissöngurinn sunginn ( og haldið partí ef afmælið þitt er um helgi ) á miðnætti daginn fyrir afmælisdaginn þinn.
Svo á afmælisdaginn fór ég með Fer og Pato yfir til höfuðborgar Paraguay bara svona aðeins til að kynnast borginni og skoða okkur um, þar eyddum við nánars öllum deginum í át og búðarráp, þar sem það er voðalítið að gera í þessari blessuðu borg.
Ég keypti þó ekkert annað en mat, paraguay-ska hálsfesti og vel ósmekklega jólagjöf handa honum Agla.
Svo var haldið uppá afmælið með félögum mínum úr gamlaskólanum á föstudaginn með heimsókn á Barfly ( boliche )
og með krökkum úr nýja skólanum á laugardaginn heima hjá Mono.

Annars kemst voðalega lítið annað en Ozzy Osbourne að í hausnum á mér þessa dagana, þar sem það er bara vika í að ég legg á stað í ferðalag til Buenos Aires og 9 dagar í Ozzy tónleikana.
Það mun nú samt sennilega koma annað blogg um það á nærstunni.
Að lokum kemur svo önnur fjölskyldu mynd eftir að foreldrarnir misstu vinnuna, við gerðumst byttur og fluttum út undir tréð við súpermarkaðinn
!Nos vemos en julio todos!
besos


Þann 11.janúar nánar tiltekið klukkan hálf tvö um morguninn hófst ferðin til Merlo í San Luis ( Merlo er bærinn en fylkið heitir San Luis ). Við lögðum af stað í 20 tíma ferðalag í fullum bíl af þrem manneskjum, fimm trjám og helling af farangri.

Daginn eftir vorum við kominn um átta leitið og fengum góðar móttökur frá Hermanigildo og co. ( vinir Fer og Pato sem lánuðu okkur húsið ). Við tók skoðunarferð um svæðið, kvöldmatur og svo fór ég beint að sofa í aftursætinu á kagganum þar sem að það var ekki svefnpláss í húsinu fyrir mig þá nóttina :)

Ég vaknaði svo eldsnemma með fæturna í loftinu, hausinn í gólfinu og allur í klessu, allir voru enn sofandi og ég hafði mjög svo takmarkaðan áhuga á að eyða meiri tíma í blessuðum bílnum svo að í fyrsta skipti í vel langan tíma fór ég í morgun göngutúr!
Þann daginn skoðuðum við bæinn, drukkum mate, kíktum á ströndina og keyptum heilan helling af nautakjöti.
Já þann daginn fóru líka húseigeindurnir ( fólkið sem þið kannist ekki við á myndinni hér að ofan ) svo að ég fékk loksins góðan nætursvefn í rúmi!

Þriðja dag ferðarinnar keyrðum við um allt héraðið, kíktum allt of snemma á folklore festival, Fer og Pato keyptu heilan helling af grjóti ( átti að vera eitthvað sérstagt grjót en… )
Svo var seinasti áfangastaðurinn San Luis höfuðborg Fylkisinns SanLuis. Þar kíktum við á útimarkað þar sem ég gerði bestu kaup lífs míns ( bólivískt bónda outfitt á 4000 kall)

Við enduðum svo daginn með kvöldverð á sveita Comedor með tvemur borðum og engum matseðil og vorum komin heim um tvö leitið.

Fjórða dag ferðalagsinns stóð helst upp úr að ég ákvað að rækta minn ynnri Gaucho og leigði hest í hálf tíma og eftir tveggja mínútna sýnikennslu hélt ég af stað til óbygða. Það gekk þó ekkert allt of vel þar sem hesturinn vildi annaðhvort bara löllast áfram, fara í vitlausar áttir eða taka spretthlaup.

Fimmta daginn gengum við mikið um uppi á risa fjalli í nágreninu, skoðuðum fossa, túrista poll og fleiri staði um daginn. Um kvöldið fórum við svo á folklore hátíð Merlo með Gaucho dönsum, tónlist, election de la reyna og fleiru spennandi. Og þar komst ég í sjónvarpið fyrir að vera ljóshærður.
Það var einhver fréttamaður sem spottaði þarna ljóshærðan dreng í þraungum gallabuxum og Lamadýrs lopapeysu og var ekki lengi að fatta að þessi væri ekki Argentínskur svo að ég endaði í viðtali við hann um hátíðina ( endilega fylgist vandlega með sjónvarpsstöðvum San Luis nærstu daga )

Kaffihúsið sem að ég sit á er að loka svo að endi ferðarinnar kemur hérna í mjög stuttu máli
restinn af ferðinni var að mestu leiti eytt í Asado át og bílferðir, já svo spjallaði ég við eitt Lamadýr :)
sjáumst eftir ca. hálft ár kæru Íslendingar
besos ( ég er ekki orðinn snar samkynhneigur kveðjandi með kossum á internetinu heldur er það vaninn í Argentínu )
ps. kannski að það komi inn fleiri myndir og stuff nærstu daga svo stay tuned!
Nú er ég kominn aftur heim til Formosa eftir æðislega ferð til Buenos Aires svo að hér kemur ferðasagan
Ævintýrið byrjaði á mánudegi með ferð á rútustöðina, þar keyptum við Fer rútumiða til Buenos Aires.

Á þriðjudaginn um sex leitið var svo ferðinni heytið út á rútustöð í annað skipti og við tók 14 tíma rútuferð. Ég var svo kominn til BA á miðvikudaginn um átta leitið og beið á rútustöðinni þar og las Rolling Stone á spænsku í þrjá æðislega klukkutíma eftir Fer því að hann tók aðra rútu á eftir mér. Eftir að hann kom héldum við á stað í smá borgar túr sem endaði á hostelinu. Svo fór Fer í vinnuna og ég fór að kanna borgina. Um kvöldið fórum við svo í eitthvað æðislegasta leikhús sem ég hef farið í. Þetta var einhverskonar underground, arty, súrealískt dans/show teatro með engum sætum. Það er eiginlega ekki hægt að lýsa þessu á annan hátt en að þarna var klikkuð 90´s danstónlist, risavaxið hlaupabretti, sundlaug uppi í loftinu, Risa DJ búr, sprengingar, ljósashow og sýningin endaði á að það fór að rigna yfir allan salin úr loftinu með svaka 90´s tónlist í gangi og allir dansandi eins og vitleysingar.
Eftir það fórum við með frænda Fer á svaka fancy veitingastað og fengum þriggja rétta máltíð.


Fimmtudagurinn fór svo líka bara í að ganga um borgina og explora svæðið á meðan Fer var í vinnuni. . Svo fór ég líka að sjá Harry Potter 7 á spænsku sem ég varð fyrir hálfgerðum vonbrigðum með og var ég líka dreginn inn á strippklúbb af gömlum manni í jakkafötum þrátt fyrir að hafa reynt að segja honum að ég væri að verða of seinn í bíó en mér var nú samt hent út stax aftur eftir létt spjall sem endaði þegar ég sagðist vera 17 ára.
Endalaust stór borg og þú getur gert hvað sem er þarna. Borgin er einhverskonar stór, gömul suður-Amerísk útgáfa af New York
Þegar Fer var svo búinn að vinna skelltum við okkur út að borða og síðan á Smashing Pumpkins tónleika á Luna Park!!!

Föstudagurinn fór svo bara mest í að drepa tíman á hinum ýmsu veitingastöðum í Buenos Aires og bíða eftir rútunni okkar til Corrientes sem fór klukkan átta um kvöldið. Á þessum eina degi fórum við þrisvar út að borða og tvisvar á starbucks.



Á Laugardaginn fórum við svo til Corrientes sem að er borg ca. helmingi stærri en Formosa í þriggja tíma fjarlægð og er heimaborg Pato, þar búa pabbi hennar og systir. Þar borðuðum við hádegismat með fjölskyldu Pato, röltum um borgina og tókum svo loksins rútu heim.

Í gær ( sunnudag ) fór ég svo í hádegis Asado til foreldra Fers í krummaskurðinu Laishi sem er í 40 mínútna akstursfjarlægð frá Formosa og er svona eins og Sandgerði heima á Íslandi. Klikkaðslega flott þorp samt með fullt af eldgömlum byggingum. Þar eru bara moldargötur og ég sá fullt af indjánum og dýr af öllum gerðum, hundar, kettir, hænur, hestar, kýr og svín labbandi um úti á götu. Þar lenti ég líka í einni hunda árás þegar ég var að skoða gamla yfirgefna byggingu sem endaði á að ég rétt náði að stinga þá af á harðaspretti að skíta í buxurnar með tvo stóra gelltandi hunda á hælunum. Já svo sá ég líka lítinn 12- 13 ára strák úti að hjóla með riffilinn sinn eins og ekkert væri eðlilegra.
Hérna er svo mikið af götu hundum og sumir þeirra safnast saman upp í klíkur og ganga um göturnar svakalega hardcore og hrella heimilishunda í göngutúrum.



Í dag var svo einginn skóli út af enn einum frídeginum sem ég veit ekki einu sinni hver er í þetta skiptið. Ég held að það verði svo ekki heldur skóli á þriðjudaginn því að það er búinn að vera einhver svaka revolution í gangi. Það eru búnar að vera kosningar í gangi um forseta nemendafélagsins held ég og skólastjórinn ætlaði að banna kosningarnar og velja sjálf eða eitthvað svoleiðis, er ekki alveg að skilja þetta og nemendurnir urðu brjálaðir skilst mér og það þurfti að kalla á lögregluna og svaka vesen.


Nú er batteríð mitt að klárast svo ég held að ég segi þetta bara gott
Kveðja frá Argentínubúanum
un abrazo
Hér kemur smá uppdate á því hvað ég hef verið að bralla himumeginn á hnettinum.
Ég ætla bara að byrja á því að seigja eitthvað frá helginni.
Á laugardaginnvaknaði ég eldhress um 10 leitið eftir nokkura tíma svefn og hljóp útí bíl þar sem ferðinni var heitið til quintu Fransescu. Þar hittust allir skiptinemarnir nema tveir í svaka quintu með sundlaug, fótboltavöll, körfuboltavöll og öllu sem þér gæti langað til að hafa í sumarhúsi. Þar eyddum við öllum deginum í að borða asado, spila basket, synda, tana og slappa af. Um sex leitið kom ég svo heim dauðþreyttur og dasaður eftir að vera úti í nærstum 40°hita allan daginn og lagðist upp í rúm að drepast úr hósta og leiðindum. Svo var ég vakinn upp um 1 leitið þar sem félagarnir voru að leita eftir mér svo að ég skellti mér í fiestu og hóstinn og veikindavesenið varð skárra.
Á sunnudaginn fór ég svo með Fer og Pato á Gaucho sýningu í tilefni af día de tradicion, það var bara stuð. Ég spjallaði eitthvað við kúrekana og fékk mynd af nokkrum, svo bauð einn þeirra mér að setjast á bak á hestnum sínum og lánaði mér hatinn og klútinn sinn og tók af mér eina mynd ( hún er hér fyrir neðan ). Svo var drukkið mate og fylgst með Gauchounum leika listir sínar á hestum fram eftir kveldi.
Vikan er búin að vera mjög róleg, bara skólinn og ræktinn og þetta venjulega.
Annars er ég er búinn að finna mér eitt ljósmynda módel, Fara á einhverja ræðukeppni/kynningu/fyrirlestur hjá the united nation og skólanum mínum, sem var reyndar drepleiðinnlegt, setja upp gúmmísundlaug því að það fer að koma sumar, farið að vera hátt í 40°hiti og bara mánuður í sumarfrí. Eignast fjórða hundinn hann Bubba (skýrður í höfuðið á Bubba Morthens en hér er nafnið borið fram eins og búbbí) sem er fárljótur eins og er því að hann er með einhver skin problems og það þurfti að raka af honum allan feldinn(mynd af honum hér að neðan). Kynnast fleiri Argentínubúum og komast skrefi nær því að verða Formosainian.
Hér koma svo einhverjar milljón myndir þar sem ég nenni ekki að skifa meira!













Svo svona þar sem það fer að líða að jólum og póstþjónustan í Argentínu er ekki þekt fyrir að vera sú besta :
Ef þú villt gleðja ungan pilt í Argentínu þá eru allar jólagjafir vel þegnar og aldrey að vita nema að þú fáir einhvern argentínskan glaðning í staðinn :D og btw þá er adressan mín 25 de mayo 1406, 3600 Formosa, Argentina.
1. Bland í poka úr nammi landi(hagkaup) ( já það er voða lítið til af nammi hér í argentínu)
2. Stóra D:fi bláa gel dollu ( já það er ekki til gott gel í argentínu og gelið mitt fer að klárast )
3.Ipod touchinn minn ( já ég hata hann sem ráðlagði mér að taka hann ekki með, því hér eiga allir rándýra síma og iphone og stuff og eingin hætta á að honum verði stolið í formosa)
4. Eina dós af mountain dew ( já heldur ekki til hérna )
5. Þórshamars hálsfesti
6. Svörtu nudie jeans buxurnar mínar
7. íslenskt túrista stöff og klink
8. canon 430 ex (flass)
9. snjó
10. rauða slaufu ( við skyrtu )
11. einhver flott sólgleraugu
12. kartöflu
13. einhvern góðan íslenskan geisladisk
14. Ef pabbi skildi nú ver búinn að fá stöðuhækkun eða vinna í lottó þá mundi ég ekkert segja nei við notaðri canon 5d, ef það var víkingalóttóið þá er Canon 5d mark ii betra
15. Eitthvað óvænt
16. Íslensku landsliðstreyjuna
17. Gsm síma ( já ég er búinn að tína míum á innan 2 mánuðum )
sjáumst eftir 8 mánuði
Hér kemur enn eitt bloggið. Ég bara nenni ekki að fara að rifja upp allt sem er búið að gerast seinust daga svo að þetta verður bara stutt mynda blogg.
Í gær átti Pato ( mamma mín hérna úti ) afmæli og í tilefni þess fórum við út að borða í hádeginu á svaka fínan stað með útsýni yfir ríó Paraguy. Um kvöldið var svo svaka afmælis Asado með fjölskyldu og vinum allt kvöldið.
Í dag var svo enginn skóli útaf því að það er Cenco í gangi ( talning á öllum íbúum Argentínu, menn sem ganga á milli heimila og byðja um tölu á heimilisfólkinu). Ég vaknaði um hádegið og fór í asado hjá vinafólki Fer og Pato, þaðan fór ég svo beint á Laguna Oca con los chicos, fórum þangaðá tvemur pallbílum, báðir með troðfulla palla af fólki. Komum í 30°hita, heiðskírt og sól. Þar vorum við allan daginn að spila strandfótbolta, rugby, synda í vatninu, drekka terere og hlusta á tónlist úr bílnum. Svaka stuð, vatnið var svipað heitt og venjuleg sundlaug, mjög ljúft. En ég var svo sniðugur að bæði gleyma að hlaða batteríið í myndavélinni og taka með mér batteríslausa myndavél, svo að það koma engar myndir frá þeirri ferð :( og svo gleymdi ég líka sólarvörninni svo ég verð öruglega vel rauður í skólanum á morgun :)
hér kemur samt ein gömul mynd frá vatninu







Skrifadi thetta fyrir einhverjum 10 dogum sidan en thad er buid ad vera eitthvad vesen med netid svo ad thetta kemur frekar seint.
Ákvað að skrifa blogg svo nú sit ég uppi á þaki með Jack og Harry í skítakulda ( 20 stiga hita ( öllum hérna finnst það vera alveg hrillilega kalt) ) í tölvunni, drekk terere og rifja upp hvað ég hef verið að gera af mér seinustu daga.
Her er svo ein mynd af þakinu þar sem ég sit gjarnan þegar ég hef ekkert að gera.

Það hefur nú svosem ekkert sértakt búið að vera að gerast seinustu daga, allt bara búið að ganga sinn vanagang, voða lítið að gera í skólanum, hellingur af fríum og enginn lærdómur, til dæmis var enginn skóli þar seinasta fimmtudag útaf rigningu, ég vissi ekki betur, skellti mér bara í peysu og labbaði af stað í skólann en þegar ég mætti blasti við tóm skólalóð, ég labbaði inn og það voru sirka 15 krakkar úr öllum skólanum mættir. Ég þurfti svo að vera í skólanum í einn og hálfan klukkutíma að bíða eftir foreldrum mínum að sækja mig þótt ég búi í svona fimm mínútna göngufjarlægð. Það er víst einhver regla um að maður megi ekki fara einn heim svona snemma, foreldrar manns þurfa að koma á skrifstofu skólans og sækja þig. Ég held að ég verði bara heima nærsta rigningardag.
Á virkum dögum fer ég vana lega í ræktina 3 í viku, það er alveg vel öðruvísi en World class heima á Íslandi, hér er líkamsræktarstöðin sem ég fer í svipað stór og búningsklefinn í worldclass í Laugum, allt eldgamalt og fínt, ég þekki allt starfsfólkið og er farinn að kannast við flesta sem að mæta þangað reglulega, þetta er eiginlega bara alveg eins og the aveagejoes í dodgeball ( verð að taka mynd af salnum einhverntíman við tækifæri )
Svo eru íþróttir í skólanum hina 2 dagana sem að ég fer ekki í ræktina, þetta ætti samt eiginlega bara að heita fótbolti í staðin fyrir íþróttir því að hvert einasta skipti síðan ég kom er búið að vera fótbolti. Núna í október á samt að breyta þessu í sund í staðin fyrir fótbolta fram í desember. Í dag fór ég svo í minn fyrsta Argentínska sundtíma og það var bara nokkuð fínt, sundlaugin var ísköld en lofthitinn bjargaði manni. En samt, ég sem hélt að ég væri búinn með skólasund eftir 10 bekk :(
Spænskan gengur svona ágætlega en ekki alveg nógu vel, ég er farinn að geta tjáð mig svona um hvert ég er að fara, hvað ég ætla að gera, geta spurt basic spurniga útí búð og svona en ég get samt ekkert verið að halda uppi neinum samræðum eða neitt svoleiðis enþá.
Seinustu daga eru vinir Fer og Pato frá öðru fylki í Argentínu búnir að vera í heimsókn svo að við erum búin að fara oft út að borða seinustu daga og seinasta þriðjudag fórum við með þeim til Paraguy. Við erum sirka tuttugu mínútur að fara þangað með bát og það kostar einhvern 300 kall ferjugjaldið og í Paraguy er allt mikið ódýrara svo það er mjög vinsælt að fara þangað að versla. Þar keypti ég til dæmis 2gb mp3 spilara, sandala, sokka og helling af mat á 3þúsund kall. Það var bara mjög fínt, öll borgin er eiginlega eins og einn stór útimarkaður og mjög gaman að koma þangað og skoða allt draslið sem verið er að selja þar.
Í gær fór ég svo á Laguna Oca það er semsagt stöðuvatn hérna í Formosa með strönd og þangað er voða vinsælt að fara á sumrin, drekka mate eða terere, tana á ströndinni og fíflast. Ég fór með Fer, Pato og öllum þremur hundunum, fórum bara að hreyfa hundana aðeins og drekka mate, við vorum nú samt ekkert sérstaklega lengi því að ég held að við höfum valið eina kalda dag ársins hér í Argentínu til að fara á ströndina. Kannski maður fari bara aftur í sumar.

Svo er ég bara búinn að vera að gera einhverja basic hluti hérna, fara í keilu, á la plaza, fara í þrjú afmæli, fara í asados, spila truco, fara í al parque, djamma með bekkjarfélögunum og slappa af. Svo var ég reyndar líka að byrja að læra á gítar í fyrradag, hann Fer ætlar að kenna mér svo að ég geti nú spilað nokkur bubbalög fyrir bekkjarfélagana áður en ég fer heim.
MYND
Núna efitir nákvæmlega 2 klukkutíma og fjórar mínútur er ég svo að fara til nýrrar fjölskyldu, þar mun ég vera nærstu 12 daga á meðan Fer og Pato eru í Brasilíu. Þau eru semsagt að fara til Brasilíu í 12 daga frí sem að þau voru búin að skipuleggja löngu áður en ég kom svo að ég gat ekki komið með þeim. Ég fer nú samt ekkert langt fjölskyndan sem ég er að fara til býr bara nokkrar quatras ( blocks ) frá húsinu mínu, fjölskyldan samanstendur af pabba, mömmu og son theirra en hann er í Ítalíu sem skiptinemi svo að við verðum bara þrjú á heimilinu.

nýja temporary heimilid mitt

Mate en Laguna Oca
Ég er að spa í að segja þetta bara gott núna, endilega komið með coment og hafið það gott á Íslandi.
Nú er ég búinn að vera hér í heilann mánuð og í tilefni af því kemur hér nýtt blogg.
Argentínumenn eru mjög mikið fyrir að búa til sérstaka daga fyrir allan fjandan og vanalega fylgir frí í skólum með þessum dögum eins og dagur kennaranna, dagur nemandanna og svo framveigis.
Í dag er día del studiante svo að það er enginn skóli í dag og ég sit hér í rólegheitunum uppi á þaki í tölvunni í 30° hita, skrifa blogg og hlusta á tónlist.
Ég hef það bara mjög gott hérna, allt svo rólegt og þægilegt hérna, ekkert til að vera að stressa sig yfir eins og skóli, vinna og svoleiðis vesen. Svo er skólinn hjá mér alltaf búinn klukkan 12:30 og heimanám er eitthvað sem krakkarir hérna hafa ekki heyrt um, svo að maður hefur nánast allan daginn í að slappa af og fíflast.
Þótt að það sé allt svona rólegt og mér finnist ég aldrey vera að gera neytt þá er ég nú samt búinn að gera alveg helling síðan seinast. Hér kemur svona það helsta í einni bunu :
Ég er búinn að fara í afmælisveislu hjá pabba Pato sem að býr í Corrientes sem er bær svoldið stærri en Formosa í ca. 2 tíma fjarlæð. Þar voru helstu skyldmenni þeirra og nokkrir vinir hanns. Það var bara nokkuð fínt og þar fékk ég einhven svakalega Argentínskan pottrétt og auðvitað afmælisköku með dulce de leche ( kökur hérna teljast ekki sem kökur nema þær hafi dulce de leche ( Argentínskt karamellusósu dæmi eitthvað ) )

Seinasta fimmtudag fékk ég svo frí í skólanum til að fara með Fer, Pato og pabba Fer til Lomites og Banado la estrella. Við vöknuðum klukkan fimm og við tók þriggja tíma bíl ferð til Lomites ( lítill bær í fylkinu Formosa) þar sem Fer var að gera eitthvað bisness thing, á meðan hékk ég á bensínstöð í bænum sem að var með þráðlaust internet og drap tíman í tölvunni. Um 12 leitið hélt svo ferðinni áfram til Banado la estrella sem á að vera fallegasti staður fylkisinns Formosa. Þangað fórum við bara til að skoða staðinn og taka myndir. Þetta var eiginlega eins og eiðimörk með helling af vatni og trjám ofan í vatninu og svaka dýralífi, þarna voru krókódílar, fiskar og fuglar af öllum tegundum. Þar bjó líka eitthvað af fólki, við sáum kannski um 10 hús á svona 10 km vegakafla. Þau voru öll úr leir og greinum af svæðinu, með ryðguðum bárujárns þökum og hestum í innkeyrslunni.

Í seinustu viku fór ég með tveim bekkjarbræðrum mínum Nico og Rodrigo og fleiri vinum þeirra sem ég þekkti ekkert og við leigðum lítinn gerfigras fótboltavöll og spiluðum 6 á móti 6. Eftir það löbbuðum við bara um bæinn og skemmtum okkur.
Í gær fóru öll ungmenni Formosa svo í partí í tilefni dag nemendanna. Mér var boðið í fiestu í sumarhúsi/höll Nico. Þangað fór ég um tíu leitið í þessa svaka höll með risa landi, sundlaug, fótboltavöll og úti skála fyrir asados og fiestur.
Þar voru helling af krökkum úr skólanum og þetta var svaka partí sem entist til átta um morguninn, þá var sólinn kominn upp og það var hringt á leigubíla til að sækja liðið. Þetta endaði í svaka sundlauga partíi þótt að ekki nærrum því allir væru með sundföt ( þar með talinn ég ) þá voru lang flestir sem enduðu útí. Ég kom svo heim um hálf níu leitið blautur upp fyrir haus eftir sundlaugina og fór beinustu leið upp í rúm hundþreyttur.
Svo er ég líka búinn að fara á strandlengjuna, í ræktina, fara í mjög lítinn skemmtigarð, labba um bæinn, drekka terere með krökkunum og gera alskinns fleiri vitleisu sem ég nenni ekki að fara nánar í.
Ég fékk líka nafnlausa spurningu í póst frá blogginu hvernig hefði gengið með Íslands fyrirlesturinn og að gefa fátækafólkinu mat. Ég heyrði
ekkert meira um þennan fyrirlestur því það var ekki komin nein ákveðin dagseting á hann svo að ég held að hann sé bara úr sögunni. Og matargjöfinni var frestað vegna of mikilli rigningu.

Her er svo ein mynd af foreldrum mínum hérna í Argentínu þeim Fernando og Patriciu að stunda áhugamál sín. Fer hefur spilað á gítar í 25 ár og er algjör meistari á gítar og syngur alveg helvíti vel líka. Pato hefur áhuga á fata hönnun og er á einhverju hönnunar námskeiði, þarna er hún að sauma skyrtu á Fer.
Sjáumst eftir 10 mánuði.
Klukkan er tíu hér og ég sit úti á palli með fer í 20 stiga og grilla asado og hlusta á tónlist, skrifa þetta blogg og bíð eftir að nautakjötið verði tilbúið.
Nú er ég búinn að vera hér í næstum því 3 vikur og er farinn að læra svoldið á hlutina hérna svo að ég ákvað að koma með nýtt blogg. Ég er farinn að venjast bænum meira, byrjaður að rata eitthvað um og svona ,þó að spænskan gangi ekkert alltof vel.
Einhvern veigin svona er svo venjulegur virkurdagur hjá mér hér í Formosa : Ég byrja í skólanum klukkan 7:30 á morgnana og er þar til klukkan 12:30. Þar geri ég ekki mikið bæði því að ég skil helvíti lítið hvað er í gangi, krakkarnir í bekknum eru líka voðalega lítið fyrir að læra og það er búið að vera eitthvað kennaraverkfall í gangi þar sem kennararnir vilja meira kaup svo að þeir mæta ekki alltaf í tímana. Til dæmis er allt sem ég gerði í skólanum í dag, ég glósaði eina A4 blaðsíðu í Spænskum bókmenntatíma, fylgdist með tveim tíu mínútna powerpoint sýningum um Argentínu í landafræði og restin af skóladeginum fór í að sitja úti á skólalóð og chilla. Eftir skólann fer ég vanalega heim og borða hádegismat sem er aðalmáltíð dagsinns og þá fæ ég í öruglega um 70% tilvika nautakjöt og allt löðrandi í fitu,salti, olíu og majónesi. Þá koma allir heim úr vinnunni og borða saman með fjölsylduni sinni. Flest allir staðir eru þessvegna lokaðir í hádeginu, því þá eru allir heima að éta. Eftir matinn fæ ég mér vanalega smá blund eða chilla í tölvunni og þar nærst fer ég annaðhvort í gymnasium (ræktina) eða Fisical ed (íþróttir í skólanum). Svo förum við oftast strákarnir úr bekknum eftir það einhvert og drekkum terere , spilum basket eða gerum eitthvað sniðugt. Svo borða ég kvöldmat með fjölskylduni oftast einhverntíman á milli 10:30 - 12 og það er líka oftast einhvernskonar nautakjöts réttur.

Síðan seinasta blogg kom er ég búinn að gera margt og mikið svo sem fara á skólaball sem var vel öðruvísi en böllin á Íslandi, það voru engir dyraverðir (þú þurftir bara að sýna miðann þinn ), þú gast tekið með þér áfengi inn á ballið svo lengi sem það var bara í gosflösku, ballið var utandyra en samt með yfirbygðu lofti, það voru nokkrir hundar röltandi um dansgólfið eins og ekkert væri eðlilegra og öll tónlistin var á spænsku fyrir utan eitt lag. , Fara á Gaucho(Argentínskir kúrekar) sýningu þar sem kúrekarnir voru að ríða brjáluðum hestum sem að hoppuðu um og reyndu að losa sig við knapann og allskinns Gaucho stöff var til sölu svo sem ponchos, kúreka hattar, stígvél, hnífar, kúreka klútar og fleyra. Fara á tónleika hjá lítilli local hlómsveit hér í Formosa á veitingastað í bænum
, fara í tvo enskutíma í litlum enskuskólum og segja þar eitthvað frá Íslandi, Fara í Fiskiveislu hjá systir Fer þar sem var grillað um 10 heila fiska og hver manneskja fékk heilann fisk ( Það var bara nokkuð nice að fá fisk eftir 3 vikna kjöt át), Fara á Plaza de San Martin með krökkum úr bekknum og ýmist fleira. Á nærsta mánudag er ég svo að fara með AFS krökkunum út í útjaður borgarinnar að gefa fátækum börnum mat,föt og leikföng.

Svo er ég líka að fara að vera með kynningu um Ísland hjá The United Nations (man ekki Íslenska orðið) hér í Formosa á spænsku fyrir fullt af fólki. Endilga komið með spurningar eða bara einhver coment. Chau!
Nú er ég kominn til Formosa og búinn að gefa mér tíma í að setjast niður og skrifa blogg svo að hér kemur ferðasagan!
Þann 19.ágúst var ég vakinn eldsnemma um morgunninn og við brunuðum út á Keflavíkurflugvöll. Þar hitti ég hina Argentínufarana og kvaddi fjölskylduna. Við fórum sjö saman, sex á leiðinni til Argentínu og ein á leiðinni til Úrugvæ. Við biðum á flugvellinum til 10:30 og þá lögðum við á stað í 5 tíma flug til JFK í New York. Þangað vorum við kominn klukkan 12:30 að staðartíma en flugvélin til Buenos Aires lagði ekki af stað fyrr en klukkan 10:15 um kvöldið. Til þess að drepa tíman tókum við lest inn til Manhattan og ráfuðum þar um í tvo tíma.
Þar nærst tókum við lestina aftur til baka á flugvöllinn og héngum þar í fimm æðislega klukkutíma. Um átta leitið sáum við svo að fluginu hefði verið seinkað til ellefu en klukkan 10:10 heyrðist í kallkerfinu : Last call to Buenos Aires. Við pökkuðum draslinu okkar niður og hlupum af stað að terminalinu og rétt náðum flugvélinni, þá hefði bara verið villa á skjánum og fluginu hefði ekkert verið seinkað. Ellefu tímum seinna vorum við lent á flugvellinum í Buenos Aires. Við drösluðumst í gegnum helling af flugvallar eftirlitum og loksins þegar að við komumst út var okkur skipt í þrjá hópa sem að fóru á mismunandi staði í Buenos Aires í arival camp. Ég lenti í hóp með Nínu og Magga og við fórum í gamlan kristilegan heimavistaskóla í úthverfi Bueson Aires sem mynnti helst á Hoggwarts í útliti. Þar vorum við í tvo daga á námskeiði og hittum krakka frá öllum heimsálfum.
Á laugardagsdagskvöldið hélt svo ferðinni áfram og við tók 14 tíma rútuferð. Ég vaknaði svo um sunnudagsmorguninn eftir að hafa sofið alla rútuferðina. Ég fékk frábærar móttökur frá Fernando, Patriciu og Afs liðinu. Ég fór með Fer og Pato í bíltúr um borgina sem að endaði á asado (grillveislu) hjá systur Fer´s.
Á mánudaginn fórum við síðan með bát yfir til Paragvæ að versla eitt og annað, meðal annars skólabúninginn minn sem að er gráar flaujelisbuxur, hvítur bolur og svartir skór. Það varhálf furðlegt að koma þangað, bærinn var allur eins og teiknimyndin Aladín.
Á þriðjudaginn byrjaði ég svo í skólanum sem er í göngufæri við húsið mitt og heitir Colegio Nacional þar er ég fimm daga vikunnar frá 7:30 - 12:30. Mér var tekið mjög vel og nánast allur dagurinn fór í það að spurja mig spurninga bæði á ensku og spænsku um allt milli himinns og jarðar. Skólinn byrjar alltaf á því að allir safnast saman á skólalóðinni og fylgjast með Argentínska fánanum vera dreginn upp og svo segja allir í kór ”Buen día” ( góðan dag ) svo fara allir í stofuna sína. Ég er í flest öllum sömu fögunum og á Íslandi nema allt er á spænsku svo að ég skil voða lítið.
Síðan þá er ég búinn að fara í margar asados, labba um catanero ( strandlengjuna) með krökkum úr bekknum, fara í afmælisveislu, spila körfubollta, djamma með frænda mínum Facundo, fara á plaza de san martin að hlusta á hljómsveitir spila, fara út að borða og margt fleira.
Endilega komið með spurningar eða eitthvað ef að ég gleymdi einhverju.
Skólinn minn Colegio Nacional

Hér mun ég svo búa nærsta árið :)